zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Toggle Sidebar
zeno
Fotbolti.net
Fotbolti.net
Professional
Icelandic
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Website
Episodes
300
26 June 2026
Útvarpsþátturinn - Sá glaðasti og úrvalslið 1-11
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.Víkingar voru ekki sáttir þrátt fyrir 4-1 sigur í Kópavogi, úrvalslið umferða 1-11 í Bestu deildinni er opinberað... og líka vonbrigðaliðið!Gestur þáttarins er Óskar Borgþórsson sem hefur verið gjörsamlega frábær með Víkingum.Þá er sigur Íslands gegn Englandi 2016 rifjaður upp og...
24 June 2026
Uppbótartíminn - Þrjú lið á leið í titilbaráttu?
Níunda umferð Bestu deildar kvenna kláraðist í gær með tveimur áhugaverðum leikjum.Farið var yfir alla leiki umferðarinnar í Uppbótartímanum í kvöld.Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Arnari Páli Garðarssyni og Snæbjörtu Pálsdóttur og þau fóru yfir leikina ásamt öllum helstu sögulínum.
24 June 2026
HM hringborðið - Stjörnurnar standa undir nafni
HM hringborðið á miðvikudegi. Kári Snorrason, Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fóru yfir úrslit og atburði síðustu daga á heimsmeistaramótinu.
23 June 2026
Harkið - Göngutúr í Garðinum
Harkið fór yfir stærstu atvikin í níundu umferð 2. og 3.deildar karla og val á leikmönnum umferðar í báðum deildum.-Uppgjör 3.deildar - 06:00-Uppgjör 2.deildar - 40:00-Spá - 01:24Harkið er í boði SerranoÞáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson
22 June 2026
Innkastið - Dalur martraðanna
Innkastið eftir 11. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Runólfur Trausti íþróttafréttamaður og markvarðaþjálfari.Víkingar sýndu mátt sinn og megin þegar þeir tóku Framara í kennslustund, KR vann markaleik gegn ÍA, Eyjamenn eru komnir á mjög gott ról, fimmtán ára markaskorari þegar Breiðablik vann KA, jafntefli í Krikanum og á Hlíðarenda.
20 June 2026
Útvarpsþátturinn - Keli í Dal draumanna og Freysi í Þrándheimi
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 20. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.Farið er yfir komandi umferð í Bestu deildinni og Þorkell Gunnar ræðir um Fram og stemninguna í Dal draumanna.Freyr Alexandersson nýr þjálfari Rosenborgar er á línunni beint frá Þrándheimi.Þá er rætt um heimsmeistaramótið í fótbolta.
19 June 2026
HM hringborðið - Tíu menn og stytta
Valgeir Valgeirsson, leikmaður Breiðabliks, og Magnús Haukur Harðarson voru gestir í HM hringborðinu þennan föstudaginn. Stóru þjóðirnar mættu til leiks og gerði Messi frábæra þrennu gegn Alsír, sömu sögu má ekki segja um Ronaldo og félaga hans í Portúgal sem gerðu 1-1 jafntefli við Kongó.
18 June 2026
UTAN VALLAR: Yfirferð á ársreikningum - Fylkir í miklu brasi
- Hægt er að horfa á þáttinn í mynd á YoutubeSævar Þór Sveinsson, umsjónarmaður Utan vallar, fór yfir ársreikninga liða úr Bestu- og Lengjudeildinni ásamt Kára Snorrasyni.Farið var yfir helstu tölur, sýnd gröf og rýnt í stöðu liðanna út frá ársreikningunum.
18 June 2026
Harkið - Bann í Búdapest
Harkið fór yfir stærstu atvik í áttundu umferð 2. og 3. deildar karla og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum.Guðbjörn Smári var vant við látinn hjá tannlækni því var kallað í Freysa.- Uppgjör 2.deildar: 8:00- Uppgjör 3.deildar: 51:00- Spá: 01:24Harkið er í boði Serrano.Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
16 June 2026
Innkastið - Eru ósigraðir Víkingar óstöðvandi?
10. umferð Bestu deildar karla gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir og Valur Gunnars eru í hljóðveri og fótboltalýsandinn Kristinn Kjærnested, fyrrum formaður KR, er gestur.Víkingur vann toppslaginn gegn KR, Stjarnan gerði markajafntefli gegn Breiðabliki í fyrsta leik Jóns Þórs og ÍA vann Val. FH vann sinn fyrsta sigur í Keflavík, ÍBV fór illa með Þór og Fram vann KA í markaleik.